Dagur íslenskrar náttúru

Dagur íslenskrar náttúru var stofnaður þann 16. september árið 2010 af Ríkisstjórn Íslands að tillögu Svandísar Svavarsdóttur þáverandi umhverfisráðherra og er haldinn árlega þann dag.

16. september er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar og stofnaður til heiðurs því mikla starfi sem Ómar hefur lagt til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að fræða um íslenska náttúru.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Dagur íslenskrar náttúru
▶︎ Stjórnarráðið, Dagur íslenskrar náttúru