Kvenréttindadagurinn 19. Júní

Bríet_Bjarnhéðinsdóttir_heldur_ræðu_á_Austurvelli_7._júlí_1915_-_AJ-2457
Bríet Bjarnhéðinsdóttir heldur ræðu á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna.

Kvenréttindadagurinn 19. júní er Hátíðis- og Barátturdagur kvenna á Íslandi þar sem því er fagnað að 19. júní 1915 fengu konur á Íslandi sem og vinnumenn  40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis þegar þáverandi Danakonungur Kristján X samþykkti nýja Stjórnarskrá fyrir Ísland.

Aðdragandi

Baráttan fyrir kosningarétti kvenna á Íslandi hafði þá staðið frá árinu 1885 þótt fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895.

Alþingi hafði þó þegar árið 1911 samþykkt lög um kosningarétt kvenna en þau lög hlutu ekki náð fyrir augum Danakonungs og öðluðust því ekki gildi. Það gerðist ekki fyrr en 1915 og þá með framangreindum aldurskilyrðum en engin önnur þjóð hafði setti sambærileg aldursskilyrði fyrir kosningarétti kvenna.

Með Sambandslagasamningi Dana og Íslendinga árið 1918 sem kvað á um jafnan rétt Íslenskra og Danskra ríkisborgara var þetta 40 ára aldursákvæði numið úr lögum og konur fengu þar með jafnan kosningarétt á við karla. En Danskar konur höfðu fengið fullann kosningarétt til jafns á við karla án aldursskilyrða sama ár og þær Íslensku þann 5. júní 1915.

Hátíðarhöldin 1915

Kvennafrídagurinn-Fólk fyrir framan Alþingi-4
Fólk safnaðist saman á Austurvelli 7. júlí 1915 til þess að fagna kosningarétti kvenna

Kvenréttindafélagið og Hið íslenska kvenfélag efndu til hátíðar þegar Alþingi var sett þann 7. júlí 1915. Austurvöllur var skreyttur hinum nýja Íslenska fána og 200 smámeyjar fóru fyrir skrúðgöngu í gegnum Miðbæinn. Alþingi fékk skrautritað ávarp og þingmenn hrópaðu húrra fyrir konum. Kvennakór söng á Austurvelli og Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Ingibjörg H. Bjarnason héldu ræður. Ingibjörg tilkynnti í ræðu sinni að næsta baráttumál kvenna muni verða stofnun Landsspítala.

Femínistar á Íslandi hafa frá árinu 2003 hvatt til þess að dagsins yrði minnst með því að bera eitthvað bleikt og notað kjörorðið „Málum bæinn bleikan“.

Kvenréttindafélag Íslands gefur út tímaritið 19. júní sem kemur út þennan dag og stendur fyrir hátíðardagskrá á Hallveigarstöðum.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Kvenréttindadagurinn
▶︎ Kvennasögusafnið, Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna
▶︎ Kvennasögusafnið, Sérstaða Íslands – 40 ára aldursákvæðið
▶︎ Vefalmanakið, Kvennafrídagurinn
▶︎ Vefalmanakið, 8. mars – Alþjóðlegur baráttudagur kvenna