Mæðradagurinn

Mæðradagurinn er Alþjóðlegur dagur mæðra og heiðrun þess að vera móðir. Á Íslandi er haldið upp á hann annan sunnudag í maí.

Dagurinn á sér þó ekki einn alþjóðlegan mánaðardag eða mánuð en oftast er haldið upp á hann í mars, apríl eða maí. Algengast er að þjóðir láti hann bera upp á annan sunnudag í maí (8. til 14.) ár hvert og þannig er það hérlendis.

Dagar helgaðir mæðrum og dýrkun mæðragyðja eru þekktir frá Fornöld og mæðradýrkun tíðkaðist í Litlu-Asíu fyrir þúsundum ára. Þaðan barst hún til Grikklands og áfram til Rómaveldis. Með kristni þróaðist mæðradýrkunin yfir í dag til dýrðar Maríu guðsmóður og öðrum mæðrum og var sá dagur fjórði sunnudagur í Lönguföstu.

Víða komst á sá siður að börn gæfu mæðrum sínum blóm eða gjöf þennan dag. Smátt og smátt dró þó úr því að þessi dagur væri haldinn hátíðlegur en hann viðhélst þó að einhverju leyti á Bretlandi og Írlandi. Hann var svo endurvakinn á 20. öld og rann þá saman við Mæðradaginn sem þá hafði komist á í Bandaríkjunum og breiðst út þaðan en Bretar og Írar halda gömlu tímasetningunni á deginum.

Feðradagurinn

Einnig er haldið upp á sérstakan Feðradag víða um heim en líkt og haldið er upp á Mæðradaginn í núverandi mynd óháð hinni löngu trúarlegu sögu hans þá kom hugmyndin að núverandi Feðradegi ekki fram fyrr en í byrjun 20. aldar þótt Kaþólska kirkjan hafi haldið upp á hann allt frá Miðöldum þann 19. mars. Hún kom einnig fram í Bandaríkjunum og var lögfestur sem Þjóðlegur dagur feðra þar í landi 1972. Á Íslandi var hann lögfestur árið 2006 og er haldinn annan sunnudag í nóvember.

Þó er hann ekki haldinn alstaðar á sama deginum líkt og með Mæðradaginn en algengast er að það sé í mars, apríl eða júní. Í Bandaríkjunum er hann haldinn þriðja sunnudag í júní og mörg lönd í Evrópu hafa tekið upp þann sið.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Mæðradagurinn
▶︎ Almanaksvefurinn, Feðradagurinn
▶︎ Vísindavefurinn, Af hverju er mæðradagur til?