Pottasleikir

Pottasleikir Pottaskefill allt eftir því hvernig á honum liggur fimmti kemur Jólasveina til byggða aðfaranótt 16. desember.

Hann skefur skrapar og upp í sig úðar hverri skóf sem hann nær og restina sleikir úr hverjum þeim potti sem einhver í ógát yfir nótt skilið óþvegin eftir.

Fráneygðum honum engin fær flúið, flæðir úr uppþvottavélinni er upp hendir hurðinni ef skekynni falin þar væri í greipum gull sápu, viðbrunnin sósan eins og vill svo oft gerast, einum honum eflaust til yndis. Ó, hve óskaplega heppin, þau brenndu ekki bara við sósuna og kálið, kartöflurnar og lambið, örugglega eyðilögðu kvöldstund sína.

En glaður skal ég að morgni þeim skínandi færa, hvurn pott og jafnvel margt margt fleira, því veislu þau fært mér hafa fjölskyldan Grundunum 14 e. eitthvað og ef lyktin að neðan svíkur mig ekki hefur ólukkan húsið elt þetta kveldið.

Ég þangað, næsti gluggi, ó hvað ilmurinn af óhreinum pottunum er unaðslegur!

Nú er veisla á meðan þið sofið, skafið og skrapað og upp í sig úðað hverri skóf svo hver pottur og kirna gljáir, sleikt niður í minnstu sprungur sem mannsins auga greinir en engin veit ég luma á launung, ég sé dýpra ofan í botn hverjum potti því í hundruði ára hef handleikið slíka, sérfræðing annan þið finnið ei gjörla.

Ó, hve yndislega veislu þið ólukkans fjölskylda fært hafið mér, hungruð að sofa með viðbrenndan kvöldmatinn vitunum í.

Að launum munu aldrei þið áður hafa litið jafn skínandi skáp, prýddan af natni þess staula sem kalla skal sérfræðing ef pottar er umræðan, þeirra skrúfur og sköft, mér trúið ég þekki þá alla.

Ég nútímann alls ekki sýti né fortíð sakna, því viðbrenndur kvöldverður toppar allar þær skófir og fjallanna grasa súpur sem innbyrt hef um dagana alla. Ó, þú yndis viðbrunni sósurnar pottur, öll grös minna fjalla fölna í þínum svardjúpa pottsins skugga.

Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum

Sá fimmti Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
-Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku’upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti’ ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Pottasleikir
▶︎ Íslenski Almanaksvefurinn, Íslensku Jólasveinarnir