Bjúgnakrækir

Bjúgnakrækir er níundi Jólasveinninn. Hann kemur til manna þann 20. desember samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Bjúgnakrækir var fimur að klifra og sat gjarnan upp í ráfri eldhúsa og graðgaði í sig bjúgu.

Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Bjúgnakrækir
▶︎ Íslenski Almanaksvefurinn, Íslensku Jólasveinarnir
▶︎ Árnastofnun, Nöfn Jólasveinana