
Gleðigangan á Íslandi er hápunktur Hinsegin daga þar sem sameinast lesbíur og hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt fjölskyldum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Samskonar hátíðir og göngur eru haldnar víða um heim en ekki allar á sama tíma.
Á Íslandi stóðu Samtökin ʼ78, samtök lesbía og homma á Íslandi fyrir Hinseginhelgi í Reykjavík í fyrsta sinn síðasta Laugardag í Júní 1993 og einnig árið eftir.

Síðan varð hlé á hátíðahöldum hér á landi þar til í Júní 1999 þegar haldin var útihátíð að viðstöddum 1500 manns á Ingólfstorgi til þess að til að minnast þess að þá voru 30 ár liðin frá uppþotunum í Christopher-stræti í New York sem urðu eftir að lögregla réðst með ofbeldi inn á Stonewall Inn skemmtistað homma og lesbía í Greenwich Village en þeir atburðir mörkuðu að miklu leiti upphaf að réttindabaráttu samkynhneigðra í Bandaríkjunum.
Haldið hefur verið upp á Hinsegin daga á hverju ári síðan og 2019 hafa því Hinsegin dagar verið haldnir í 20 ár samfellt auk þess sem þess er sérstaklega minnst að 50 ár eru liðin frá uppþotunum í Christopher-stræti.
Hinsegin dagar hafa vaxið og dafnað á Þessum 20 árum og eru í dag orðnir ein af fjölmennustu hátíðum þjóðarinnar með í kringum sjötíu þúsund þátttakendum ár hvert og breyst úr eins dags Gleðigöngu hátíð í sex daga samfellda menningarhátíð sem í ár 2019 stendur frá 8.-17. Ágúst.
Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Hinsegin dagar, Gleðigangan
▶︎ Wíkipedía, Gleðiganga
▶︎ Wíkipedía, Hinsegin dagar