Gluggagægir

Gluggagægir er tíundi Jólasveinninn kallaður sem kemur til ofan fjöllum þann 21. desember samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Gluggagægir lagðist á glugga til að gægjast inn. Ef hann sá þar eitthvað eigulegt reyndi hann að krækja sér í það.

Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Gluggagægir
▶︎ Íslenski Almanaksvefurinn, Íslensku Jólasveinarnir
▶︎ Árnastofnun, Nöfn Jólasveinana