Skyrgámur eða Skyrjarmur

Skyrgámur eða Skyrjarmur eins og Jóhannes úr Kötlum kallaði hann er áttundi Jólasveinninn kallaður sem kemur fjöllum ofan þann 19. desember samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Skyrgámi þótti skyr afskaplega gott og stalst gjarnan í skyrtunnuna og hámaði í sig þangað til hann stóð á blístri.

Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:

Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o’n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Skyrgámur/Skyrjarmur
▶︎ Íslenski Almanaksvefurinn, Íslensku Jólasveinarnir
▶︎ Árnastofnun, Nöfn Jólasveinana