Jónsmessunótt

Jónsmessunótt er sú nótt kölluð sem er aðfaranótt Jónsmessu þann 24. júní. Víðast hvar í Evrópu er Jónsmessu fagnað sem og víðar sem miðsumarshátíð og þá haldin ýmist á sólstöðum þann 21. eða dagana þar á eftir til 24. júní. Mest þó í Norður-Evrópu og oftast þá kvöldið eða nóttina áður samanber leikrit Shakespeares, „A Midsummer Night’s Dream“ sem í íslenskri þýðingu nefnist Draumur á Jónsmessunótt.

Jónsmessunæturbrenna, málverk eftir Norska málarann Nikolai Astrup (1880 – 1928)
Jónsmessunæturbrenna, málverk eftir Norska málarann Nikolai Astrup (1880 – 1928)

Þá tíðkuðust og tíðkast víða enn miklar veislur brennur og dansleikir sem oftast tengdust ýmsum yfirnáttúrlegum verum, nornum, draugum og púkum enda talið að þessa nótt væru skil milli heima minni en flestar aðrar nætur og því meiri líkur á því að hitta fyrir hverskyns handanheims verur. Víða eru miðsumarshátíðir með stærri hátíðum í viðkomandi löndum til dæmis Svíþjóð.

Jónsmessunótt á Íslandi

Eins er það með venjur á Jónsmessunótt að á Íslandi var ekki sama trúin á mikil drauga eða nornalæti kanski vegna þess að þær verur þola illa dagsins ljós og þessi nótt nær dagsbjört og því ekki neitt myrkur til að hræðast hvað leynst gæti í nóttinni.

Þó þótti Jónsmessunótt ein af fjórum mögnuðustu nóttum ársins ásamt jólanótt, nýjársnótt og þrettándanótt en allar þessar nætur eru nálægt sólstöðum. Margur af þeim átrúnaði sem þessum nóttum tengdist var hinn sami eins og að þær væru góðar til útisetu á krossgötum kýr tali og selir fari úr hömum sínum.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Wíkipedía, Jónsmessunótt
▶︎ Íslenskt Almanak, Sólstöður
▶︎ Íslenskt Almanak, Jónsmessa