Páskatungl

Páskatungl nefnist það nýtt tungl, það er fæðing þess tunglmánaðar sem inniheldur Páskadag.

Reglan um hvenær Páskadagur er ár hvert er í sinni einföldustu mynd;

að hann er fyrsta sunnudag eftir fyrsta tunglfyllingardag þess tunglmánaðar, það er þess tunglmánaðar sem hefst með Páskatunglinu, frá og með 21.mars.

Þessi regla er ástæða þess að Páskadagur sem og allir hátíðis- og tyllidagar sem reiknaðir eru út frá Páskadegi eru kallaða hræranlegar hátíðir, það er eiga sér breytilegar dagsetningar frá ári til árs þótt þær séu allar í innbyrðis samræmi þar sem þær eru allar reiknaðar út í sama daga eða vikufjölda frá Páskadegi ár hvert, sama hvort það á við um Öskudag í upphafi Lönguföstu eða Hvítasunnudag.

Þó er þessi regla ekki alveg svona einföld þótt það sé sjaldan sem hún ekki stenst orðuð í svo stuttu máli en nánar er hægt að lesa ýtarlega um útreikning Páskatunglsins í grein eftir Þorstein Sæmundsson á vef Almanaks Háskólans auk greinarinnar Um grundvöll páskareiknings þar sem sá útreikningur er skýrður út.

Heimildir og ýtarlegri lesning
▶︎ Almanaksvefurinn, Páskadagur
▶︎ Almanak Háskóla Íslands, Þorratungl og páskatungl
▶︎ Almanak Háskóla Íslands, Páskatungl og nöfn tungla misseristalsins
▶︎ Almanak Háskóla Íslands, Um grundvöll páskareiknings
▶︎ Almanaksvefurinn, Jólatungl
▶︎ Almanaksvefurinn, Þorratungl