Hví er ekki búið að uppfæra tölvudagatalið fyrir 2026?

Skýringin á því er sú að árið 2020 veiktist ég alvarlega. Ég taldi að þetta myndi ganga yfir en hefur ekki gert það og ég í dag orðin öryrki og verulega orkulítill og með skerta færni til nánast allra verka.

Ég hef þrjóskast við, harður á því að ná heilsu aftur, og reyndi allt sem ég gat framan af að vinna, sem gerði mér bara slæmt. Í dag er ég búinn að sættast við það að þetta verður líklega staða manns til loka dags og þá er bara að læra að lifa með þessari nýju stöðu í lífinu og gera það besta úr því sem ég get.

Þetta er sem sagt ástæða þess að kominn er febrúar og ég er rétt núna að byrja að uppfæra dagatalsviðbótina fyrir þetta árið, 2026.

Hvernig þetta gæluverkefni mitt mun þróast, hvort mér muni takast að ná upp dampi aftur og standa mína plikt við að uppfæra viðbótina og auka við fróðleik á vefnum, verður bara að koma í ljós og mjög takmarkað sem ég get í rauninni gert annað en stunda endurþjálfun og eðlilega við skerta starfsgetu verð ég að velja og hafna hvað af því sem ég hef fengist við ég hætti alfarið að reyna að gera og hverju ég vilji nýta þá litlu orku sem ég á eftir í.

Ég vil einbeita mér að því sem ég get gefið án nokkurra skilyrða og kosti fólk ekki krónu. En ég hef sinnt margs konar slíkri sjálfboðavinnu svo ekki er einu sinni víst að ég muni geta sinnt því öllu.

Ég er því fyrst núna um miðjan febrúar 2026 að uppfæra tölvudagatalsviðbótina og vonandi næ ég að klára það á næstu vikum, enda allir dagar tengdir Páskum fram undan og ég verð í það minnsta að vera búinn að færa inn Bolludaginn sem er bara eftir helgina (skrifað 11. febrúar 2026).

En sem ég segi, ég get engu lofað um framhaldið næstu árin. Ég hef allan vilja til þess að sinna þessu verkefni eins og ég hef gert og það vaxið og vaxið í þau nær 20 ár síðan ég byrjaði á þessu grúski mínu og mikið sem ég á eftir að skrifa um, hluti sem ég hef verið að komast að með mínu grúski og væri handónýtt að dagaði bara uppi á harða disknum á tölvunni minni.

Þetta svar hef ég þurft að senda æði mörgu fólki því yfir mig hefur rignt tölvupóstum þar sem fólk spyr hvað valdi því að ekki er búið að uppfæra.

Ég er ekkert með neinn teljara eða slíkt og veit í raun ekkert hversu margt fólk notar þessa tölvudagatalsviðbót. Ég hef þó komist að því eftir óbeinum leiðum, að öllum líkindum hleypur fjöldinn á einhverri tölu vel yfir 10 þúsund manns. Svo ég finn til ábyrgðar og vil reyna að gera mitt besta.

En eins og ég segi, enginn veit sína ævi fyrir og að missa heilsuna breytir eðlilega öllu lífi manns svo það verður bara að koma í ljós hvernig mér mun ganga að halda úti þessum vef, en ég vil ekki gera það nema almennilega, eða ekki.

Núna er ég ekki búinn að ná að gera það almennilega. En það er líka vegna þess að ég hef verið að þrjóskast við og viljað halda áfram að sinna öllu eins og áður en er loksins búinn að sætta mig við orðinn hlut og hættur að sinna mörgu og vil gera mér vonir um að í staðinn geti ég þá sinnt því sem ég vil sinna með sómasamlegum hætti.

En þetta verður bara að koma í ljós.

Næsta mál er að ég sé að lágmarki byrjaður og búinn að uppfæra alla þá fjölmörgu daga sem nú fara í hönd, frá og með næsta mánudegi sem er Bolludagurinn, ég get ekki verið þekktur fyrir að ná ekki að komast af stað áður en öll Páskatengda törnin byrjar.

Ég biðst afsökunar á að hafa ekki verið að standa mig í stykkinu, en núna að minnsta kosti er ég að leggja af stað og ætla ég að reyna að ná að uppfæra tölvudagatalsviðbótina með sómasamlegum hætti, ég á eftir að skrifa um minnst einn nýjan dag einnig, svo það er ýmislegt sem þessu tilheyrir.

Þetta sjálfsagt lítur ekki út fyrir að vera mikil vinna, en á bak við þetta dagatal og vef liggur mikið meiri vinna en nokkurn grunar. En það tilheyrir því að vera grúskari og ekki sé ég eftir einni einustu mínútu sem í þetta verkefni mitt hefur farið.

Svo vonandi næ ég að halda þessu úti sem lengst, eða í versta falli finna aðra manneskju sem hefði sama áhuga og ég og myndi taka við af mér.

Bragi Halldórsson
grúskari af guðs náð líkt og orðatiltækið hljómar og vonandi næ að halda áfram grúski sem lengst

Skildu eftir skilaboð

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.