15:54 21. Júní 2019

15:54

Í viðtali við Þór Jakobsson í Fréttablaðinu 20. Júní kemur fram að Sumarsólstöður árið 2019 eru 21. Júní klukkan nákvæmlega 15:54 að Íslenskum tíma samkvæmt Almanaki Þjóðvinafélagsins. Það er um miðjan dag kl. 3:54 en ekki um nóttina.

Orðrétt segir Þór „Viðsnúningurinn gerist á sömu mínútunni um alla jörðina og það er magnað. … en það gerist að þessu sinni klukkan 15:54 að Íslenskum tíma.“

Og vissulega er það magnaða

Allsstaðar á Jörðinni á nákvæmlega sömu sekúndunni breytir Jörðin, móðir okkar allra, gangi sínum um himingeiminn og fer að halla sér á hina hliðina líkt og hún gerir tvisvar á ári á Sumar- og Vetrarsólstöðum. Eins og hún velta vöngum hægt en hugsi og vissulega og eðlilega er staða barna henna, lífsins á hjörðinni henni hugleikið þessi misserin eins og fyrir okkur er komið.

Jörðin er eins og Þór segir, á öðrum „enda“ sporbaugsbrautar sinnar um sólu í dag (21. Júní), lengsta degi ársins á Norðurhveli Jarðar en þá eru Vetrarsólstöður á Suðurhvelinu.

Tilefni viðtals FBL við Þór er Sólstöðuganga sem hann segir að sé Meðmælaganga með lífinu og er haldin í Viðey þetta árið og allir velkomnir. Siglt er frá Skarfabakka kl. 20 um kvöldið og til baka ekki seinna en 23.

Þór segir Sólstöðumínútuna vera tímamót á för Jarðar um Sólu og mælir með því að fólk fagni þeim tímamótum með íhugun í þögn.

„Við getum ekki gert það saman í Viðey þar sem gangan er að kvöldlagi en stöldrum við, engu að síður, klukkan 15:54, í einrúmi, fá eða mörg saman og hugsum til meðbræðra og systra um alla Jörð.“

Viðtalið við Þór Jakobsson í heild sinni má lesa í Fréttablaðinu 20. Júní á Tímamótasíðunni en það virðist ekki ekki vera á vef blaðsins.

Munum 15:54 21. Júní 2019

Það kostar ekkert að stoppa andartak og staldra við á nákvæmlega þessari mínútu þegar Jörðin okkar breytir stefnu og veltingi sínum í himingeimnum eins og hún gerir árvisst tvisvar á ári líkt og hún hefur gert frá ómunatíð.

Við gleymum því oft og vanmetum hvað þessi breyting á gangi Jarðarinnar um Sólina hefur á allt lífið á Jörðinni og hefur mótað líf allra lífvera hennar og þar með talið okkar.

Því hefur allt frá því að Homo Sapíens fór að hugsa og hugleiða lífið, sitt eigið og annarra lífvera, Jarðarinnar og alls himingeimsins, haldið upp á þessi mögnuðu og mikilvægu mótandi tímamót sem Sólstöðurnar eru fyrir fyrir okkur öll.

15:54

Það kostar ekkert að stoppa andartak, hægja á ferðinni í harðahlaupum dagsins og hugsa heildrænt um að við erum hvert og eitt okkar partur af órjúfanlegu heildarlífríki Jarðarinnar. Og ekki er verra að leiða hugan að hvað sú uppfynding mannsins, landamæri, verða marklaus og hlægileg í því samhengi. Línur sem við drögum í sandinn og söfnumst saman í hópa innan þeirra.

Hve fjarstæðukennt það verður þegar við hugleiðum hvernig allt líf á Jörðinni er einn allsherjar samhangandi vefur þar sem hver þáttur styður annan og er honum háður og að við getum ekki tekið okkur sjálf út fyrir sviga og verið stikkfrí í þessu órjúfanlega neti sem lífið á Jörðinni er.

Munum, 15:54, þó ekki sé nema að loka augunum rétt sem snöggvast, draga djúpt andann og muna að Jörðin okkar er bara ein og það er ekki til neitt Plan B.

15:54

Bragi Halldórsson
grúskari og gruflari af guðs náð

Skildu eftir skilaboð

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.