Á léttu nótunum má segja að í ár sé dagur elskenda og ástvina sérstaklega helgaður stormasömum samböndum ;)

Valentínusardagurinn er helgaður ástinni og haldinn hátíðlegur á messudegi heilags Valentínusar þann 14. febrúar ár hvert. Þó er hann ekki neinn messudagur lengur hér á landi ef hann var það þá nokkurntímann.

Í kaþólskum sið eru nánast allir dagar ársins helgaðir einhverjum dýrlingum en misjafnt hversu mikið hver þeirra hefur höfðað mest til fólks. Bæði hefur það verið mismunandi eftir löndum sem og tíðaranda hverju sinni enda þegar talað er um kirkjusöguna er almennt talað um kaþólsku kirkjuna sem hina samfelldu tvöþúsund ára kirkjusögu og á þeim tíma hefur eðlilega heilmargt gerst og breyst.

Kaþólskan heldur mikið upp á dýrlinga og frá okkur Íslendingum séð hafandi verið með Lúterska þjóðkirkju í margar aldir þar sem dýrlingadýrkun er segja má engin nema í nafngiftum ákveðinna daga þá eru messudagar ákveðinna dýrlinga sem í kaþólskum sið fyrir siðaskiptin var haldið upp á sem hátíðis– og frídaga hér á landi frekar framandi og flestir löngu gleymdir. Enda voru þeir almennt afhelgaðir og feldir niður sem frídagar og þar með gleymdust þeir fljótt þar sem ekkert tilefni var lengur til að halda upp á þá. Þessir dýrlingadagar utan örfáa sem ákveðnir siðir og hefðir voru bundnir við en þeir siðir og hefðir hafa í tímans rás lagst af svo eftir standa ekki neinir helgi- né frídagar kenndir við dýrlinga lengur hér á landi.

Það eimir þó aðeins eftir af dýrlingadýrkun í tvemur daganöfnum sem við merkjum ennþá við á dagatölum og hafa einhverja merkingu fyrir okkur, þá Þorláksmessu fyrir aðfangadag og Jónsmessu. Fleiri daga kennda við dýrlinga er almennt ekki lengur að finna í minni fólki.

En þá bregður svo við að við tókum upp á því að innleiða og halda upp á einn gamlan dýrlingadag hérlendis á síðustu öld sem jafnt og þétt er búinn að festa sig í sessi og svo mikið að segja má að Jónsmessan að minnstakosti sé nánast að falla í skugga hans enda sjaldan neitt tilstand þann dag, þótt Þorláksmessa fyrir aðfangadag (þær eru nefnilega tvær en hin öllum gleymd) muni sjálfsagt seint gera það á meðan við höldum okkar stórgjafa jól.

Enda Þorláksmessu fyrir aðfangadag sem dæmi líkt við algeran Klepp hvað verslun varðar hvort sem viðskiptavinir eða kaupmenn segja söguna og er þótt hann sé hvorki helgi- né frídagur sannkallaður tyllidagur sem allir eru meðvitaðir um og stýra gjörðum sínum þann dag samkvæmt þeim hefðum og venjum sem um hann hafa myndast. Því mun messa heilags Valentínusar ósennilega skyggja á Þorláksmessuna í bráð að minnstakosti.

En hún virðist þó vera komin til að vera þótt hún sé dálítill vandræðagemlingur hér á landi sökum eldri hefða sem rekja má til hátíðis– og tyllidaga Íslenska misseristalsins sem við höldum ennþá upp á. En það er nálægð Valentínusardagsins við konudaginn sem er ekki nema um viku seinna og við höldum upp á með ekki ólíkum siðum og hefðum.

Valentínusardagurinn á Íslandi

Ekki er vitað hvenær fyrst var farið að halda upp á Valentínusardaginn hér á landi. Elsta skrifaða heimildin sem enn hefur fundist er úr Morgunblaðinu frá 1958:

…hér á landi fer minna fyrir deginum. Þó hafa blómaverzlanir í Reykjavík til sölu litla blómvendi, sem hnýttir hafa verið í tilefni dagsins.

Einn siður tengdur þessum degi hafur því verið komin til landsins um miðja 20. öld en smámsaman hefur hann náð meiri fótfestu og sést það best á heilsíðu auglýsingum í dagblöðum en þær kosta nú sitt svo reynsla kaupmanna undanfarin ár af kaupum á vörum sem tengja má þessum degi hefur augljóslega aukist.

Nálægðin við konudaginn

Ætla má að ein ef ekki aðalástæða þess að tilstand á þessum degi hafi þó ekki fest sig meira í sessi en orðið sé sú hefð okkar að karlmenn gefi konum blóma á konudaginn en hann er aðeins um viku eftir Valentínusardaginn. Því það er oftar að það séu karlmenn sem gefi konum gjafir eða blóm á Valentínusardaginn að minstakosti hérlendis sem líklega er arfur frá konudagsblómunum en minna um að konur gefi körlum blóm og í rauninni aðrir siðir en blómagjafir og gera vel við sig í mat og drykk ekki enn orðnir algengir. Þar sem hefðin að halda upp á konudaginn er séríslensk er ekkert skrítið að Valentínusardagurinn sé ekki eins viðamikill tyllidagur hér á landi og víða erlendis.

Hefðin og nýir siðir

Að fara út að borða og eiga yndisstund saman sem ætti að hæfa á degi elskenda og ástvina er þó fátíðara á Valentínusardaginn en ætla mætti og sjálfsagt þar sem þann sið er þegar algengt að halda á konudaginn. Sem dæmi þá er það nánast orðin fastur liður að blómaverslanir bjóði afsláttarkort á valda veitingarstaði með blómvöndum sínum á konudaginn.

Því getur verið að mörgum finnist að það að gefa blóm eða gera vel við maka sinn með aðeins viku millibili rýri hvort annað og virka nánast eins og færibandavinna þegar fallegur Valentínusar blómvöndurinn er varla farinn að láta á sjá þegar nýjum er bætt við að þessir dagar renni saman. En öðrum sem kannski eru rómantískari finnst þetta sjálfsagt kærkomið tilefni til þess að sýna ást sína og væntumþykju oftar.

Tilstand á þessum degi hérlendis mun því ólíklega aukast mikið sökum nálægðarinnar við konudaginn nema ef að fleiri siðir en að karlmenn gefi konum blóm muni ryðja sér til rúms og þar er af mörgu að taka ef litið er til annara landa. Svo hugmyndaflug þeirra rómantísku mun sjálfsagt ráða mestu þar um.

Það hefur tildæmis færast í vöxt að gefa á jólum eða öðrum gjafa tyllidögum upplifunar og yndisstundir saman í stað hluta og hver veit nema að slíkir siðir muni færast í vöxt og þá frekar á Valentínusardaginn en konudaginn því rótgrónir siðir ylja fólki oftast meira en að breyta út af vananum og konudagsblómin orðin svo rótgróin hefð að margar konur sakna þess að fá ekki blóm sérstaklega frá maka sínum á þessum degi.

Því er ekki ósennilegt að ætla að ýmsir aðrir siðir en að gefa blóm muni bætast við eða jafnvel taka yfir þennan dag elskenda og kærra vina enda manneskjunni líklega eðlislægt að vilja sína kærleik og vináttu í verki og gleðjast saman eins og siðir í kringum hátíðir sýna og sjálfsagt ástæða þess að við yfir höfuð höldum hátíðir sem og siðir eins og að færa sínum ástkæru blóm eða sýna ást okkar og vinarþel með ýmsum öðrum hætti.

▶︎  Nánar um Valentínusardaginn hér á Íslenska Almanaksvefnum

Skildu eftir skilaboð

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.